Jæja jæja.... hmmm... það sem á daga mína hefur drifið er: - læra... of aftur læra... - spilaði "Partí og co." með Pálma Þór, Challe og vinkonu Challe... nb á sænsku sem var mjög forvitnilegt og gaman=) - fór í bíó með Vanessu á Music and lyrics... æðisleg mynd þar á ferð!!! - fór á Nation ... frekar mikið stuð og mikið dansað!! =) - spilaði "Take a Gamble" í fyrsta skiptið með Sigga og Silju... og nú kann ég texas holdem (veit ekki hvernig er skrifað) - læra....
Svo núna næstu daga fer páskafríið að bresta á en áður þarf ég að halda fyrirlestur á svokölluðu symposium. Það er svolítið eins og ráðstefna sem er frá 8-17 á föstudaginn. Þar held ég ásamt hópnum fyrirlestur um Gecko eðluna ,mjög áhugavert, kl.16 þ.a. ég þarf að vera þarna í 9 tíma... en björtu hliðarnar er þó þær að þegar þetta er búið þá er komið Páskafrí!!! =) Ég ætla að taka mér smá frí og fara í ferðalag til Þurý og Andra í Århus og ég get ekki beðið þar sem ég hlakka svo til!!!! =) En svo verð ég bara að vera dugleg að læra og læra... þangað til Kría kemur og verður hjá mér í tvo daga, ég hlakka til þess líka=). Við ætlum á tónleika með Veronica Maggio (sænsk söngkona) og svo bara hafa gaman... og borða páskaegg...mmm =) Svo kemur mamma mín til okkar í heimsókn þann 17.apríl og ég hlakka ótrúlega mikið til að fá knúsa hana og hafa hana hér =)
En jæja þangað til næst bið ég að heilsa ykkur !! =) Kram Kristveig ;)
Jæja ... núna var ég bara rétt í þessu að koma heim... en ég var í munnlegu prófi í morgun kl.10 í nanovetenskapliga tankeverktyg þar sem maður er að stúdera Fourier og Laplace meðal annars og viti menn... ég fékk 4 af 5 mögulegum... og ég er bara mega ánægð með það takk fyrir =) Fyrir prófið var ég samt að deyja úr stressi ... en svo núna get ég ekki hætt að brosa og lífið er svo yndilegt + að það er rosagott veður =) En jæja ætla bara að hafa þetta stutt núna því ég er að fara með brósa að borða í hádeginu til að fagna góðum degi=)
Jæja núna ætla ég að reyna að endurskrifa seinasta blogg sem datt út fyrir rúmri viku síðan... ég reyndar er löngu hætt að vera pirruð út af því en það hefði verið gott að það hefði ekki komið fyrir=) Jæja þá er að byrja frá byrjun... 8.febrúar 2007 kom Magga til mín í heimsókn =) Fimmtudagur: .. fór til DK að taka á móti Möggu.. .. settumst smá niður og kjöftuðum.. það var svo gaman að hittast!!=) .. lest heim til Lundar... versluðum smá, fórum út að borða á VESPA.. very good... Föstudagur: ..sváfum út...zzz... ..fórum að sjá háskólasvæðið þar sem ég er.. ágætisgöngutúr... ..fórum niður í bæ að versla... again.. and more... ..urðum smá seinar vegna verslunaræðis... og þurftum því að taka lestina frá Malmö til Köben... þar sem við vorum að fara að hitta faggana... ..lentum hjá Hildi og Sigga um rúmlega 19... þau voru svo yndislega að leyfa okkur að crasha hjá sér yfir nóttina =) ..náðum að vera tilbúnar og komnar á ca. réttum tíma á veitingastaðinn, Italiano Ristorante, þar sem við hittum stelpurnar ..Fórum svo á djammið.. geggjað stuð... ég og Magga enduðum svo á bar, sem ég man ekki hvað heitir, í skemmtilegum samræðum við Dani á dönsku og sænsku og lærðum einnig að spila mjög skemmtilegt lygateningaspil... trevligt kväll...!!=)... komnar heim til Hildar og Sigga um 05:00 eða eiginlega man ég það ekki .... Laugardagur: ..Fórum hressar og kátar á fætur um hádegið =) ..Eyddum deginum með Hildi á Strikinu.. mjög skemmtilegur dagur, og enduðum svo á Hviids... ..Vorum komnar aftur til Lundar um 18.. borðuðum og fórum svo á djammið í Lundi... og komnar heim um 04:00 eða svo... Sunnudagur: ..Verlunarleiðangur í Nova Lund upp úr hádegi ..Út að borða á Viggos (þar fást einu alvöru hamborgararnir hér í Lund en annars fást bara kjötfarsborgarar eða eitthvað svoleiðis rusl...) ..Enduðum svo kvöldið á að fara á tónleika með Laleh sem voru algjört æði!!!
Mánudagur: .. Fylgdi Möggu á lestarstöðina...oh það var svo leiðilegt að kveðja=( .. TAKK MAGGA MÍN FYRIR YNDISLEGA HELGI !!! =)
Vikan sem á eftir kom var bara nokkuð eðlileg nema hvað að það var skrýtið að vera aftur ein.. Helgina eftir fór ég í partý til Kristin, sænska stelpan sem var úti í Frakklandi á sama tíma og ég. Þetta partý var mjög forvitnilegt... spes... grínuðumst með að líkja þessu við kommúnista partý.. hvernig sem svo sem þau eru.. Endaði svo á djamminu með Vanessu og Stebba á Hercules.. like always... en skemmtilegt kvöld í alla staði... Vikan sem á eftir kom var líka nokkuð eðlileg.. nema hvað ég fór í 2x6 klst efnafræðilöbb.. get með sanni sagt að þetta voru 12 lengstu klukkutímar sem ég hef upplifað í langan tíma.. fannst að við gerðum ekki annað en að bíða... Svo kom helgin sem Þóroddur frændi kom: Föstudagur: ..Efnafræðilab =) + endlaus snjór.. ..Þóroddur kom um 21:00.. ..Borðuðum svona racletts.. eða frekar, við steiktum kjöt á steinhellu.. mjög gott... ..sátum í rólegheitum og spjölluðum.. Laugardagur: ..Fórum á snjóþotu og það var svo ENDALAUST GAMAN.. =D ..Fengum okkur svo svona "efter-ski"... heitt baileys kakó og með því.. ..Höfðum okkur itl og fórum út og fengum okkur pizzu á Vildandens pub sem er staður sem selur ótrúlega margar bjórtegundir og var það mjög gaman að smakka ýmislegt.. það forvitnilegasta en ekki slæmt... var súkkulaðibjórinn sem Pálmi Þór fékk sér... ..Fórum að keppa í pílukasti .. krikkett hét leikurinn minnir mig... varð í 2.sæti... ekki slæmt... ..Ferðinni var svo heitið á Kulturen þar sem við hittum Trulle og Thomas og fengum okkur einn öl... ..Enduðum svo a Hercules þar sem við hittum Sigga, Sigga og Stebba =) mjög gaman og mikið stuð... Jæja svo er ekkert fréttnæmts síðan þarna síðustu helgi.. Er búin að panta far heim til Íslands í sumar... 5.júní.. en Gunnsa sys og Sara Björt ætla að koma í lok maí og við verðum svo samferða heim allar þrjár.. =) hlakka mikið til =) Er að fara í próf í þessari viku þannig að ég verð bara að læra næstu daga og ætla svo að reyna að fara yfir til Århus í heimsókn til Þurý og Andra næstu helgi!!! =) Jæja góða nótt... klukkan er orðin allt of margt en ég er fegin að þessu er lokið =) KRAM Kristveig PS. nýjar myndir komnar inn: www.fotki.com/kristveigth
OH.. ég hata stundum að blogga... var búin, eins og svo margir lenda í, að skrifa færslu um það sem hefur drifið á daga mína síðustu 3 vikur og það þurrkaðist allt út... nú er ég fúl.... en þetta þýðir það að ég nenni ekki að byrja aftur fyrr eftir að ég er búin að róa mig niður af pirringi ... og svo er ég líka að fara að borða þannig að...
Jæja... ég stend við loforð mitt mamma mín :) En annars er fínt að frétta héðan frá Lundi... Nema hvað ég er smá stressuð yfir skólanum.. ekkert svaðalega en samt smá... bara mikið að gera akkurat núna þessa stundina... en það vonandi reddast. Eh annað hefur gerst í mínu lífi síðan seinast er... seinustu helgi fór ég í partý með Pálma Þór, Challe og Sigga Guð og við þekktum engan þar... við komum aðeins of seint þannig að það var erfitt að fara að blanda geði við fólk sem var þegar komið í djúpar samræður... en þetta var mjög fínt samt:) Átti gott tal við e-n svía um íslenskar snyrtingar á Keflavíkurflugvelli... já eða orðið snyrting meira... en honum þótti það mjög athyglisvert og skemmtilegt orð að segja.. átti mjög erfitt með í fyrstu að skilja hvað hann væri að segja.... Eníveis við ákváðum svo bara að fara niður í bæ og fórum á Carlssons Trädgård eins og hann heitir og það var mjög gaman... Á sunnudeginum var ég svo búin að lofa Pálma Þór og Challe að ég skyldi hjálpa í íbúðinni hennar Challe og í staðinn myndi PÞ hjálpa mér með verkefni... (mín hugmynd...) En ég fór eiturhress eða þannig til þeirra um tvöleytið og fór að mála baðherbergið hjá henni og það gekk svona þrusuvel... Ég verð bara að koma þvi að að þetta var í fyrsta sinn sem ég hef málað veggina en ég er alltaf látin mála leiðilegu hlutina... kanta, ofna og bak við þá og svona leiðilegt bara.. :) en það er miklu skemmtilegra að mála með rúllunni :)... eníveis... Annars er lítið á dagskrá nema læra, borða, sofa og horfa á Seinfeld sem ég er btw komin með æði fyrir, sem er fyndið því ég hataði þessa þætti áður en ég byrjaði að horfa á þá... þetta kennir mér að dæma ekki fyrirfram... :) Hins vegar er Magga mín aka Stína Stuð eins og ég kýs að kalla hana að koma til mín á fimmtudaginn í næstu viku og ég get ekki beðið:) hlakka mega mikið til:) .. við erum svo að hugsa um að skella okkur til DK og kíkja á djammið með föggunum á föstudagskvöldinu... Og svo ætlum við bara að hafa það rosagaman og nice hjá okkur:) Jæja ég þarf að fara að halda áfram að lesa KEMI ... Kram Kristveig
Halló halló... síðan seinast er allt gott að frétta!! Svo fór að Þurý og Hildur komu til mín um helgina. Fór á djammið á föstudeginum með Vanessu og fleirum og það var mjög gaman... Það vildi svo skemmtilega til að ég hitti sænska stelpu sem var úti sem skiptinemi í Frakklandi á sama tíma og ég.. þetta var ótrúlega gaman því við vissum hvorugar af hvor annarri hér í Lund.. þannig að þetta var frekar kúl... En svo á laugardeginum átti ég þvottatíma kl.9 og vá hvað það var erfitt að vakna en það gekk... svo fór ég að sækja stelpurnar á lestarstöðina og við fengum okkur hádegismat og fórum svo heim og kjöftuðum endlaust mikið... það var svo gaman að fá þær... Svo fórum við í búðina og keyptum í mat, elduðum og gerðum okkur fínar fyrir kvöldið og sátum svo í rólegheitum og kjöftuðum þangað til við fórum niður í bæ sem var mjög gaman=) Á sunnudaginn fórum á Nova Lund sem er lítið mall hérna (btw mjög hentugt í stærð). Svo vorum við bara í rólegheitum um kvöldið. Horfðum á mynd sem ég mæli með og heitir Persuit for Happyness... mjög góð mynd þarna á ferð!! Jæja svo kom mánudagurinn og kveðjustund...:( ekki gaman að þær séu farnar.. en TAKK ÆÐISLEGA STELPUR MÍNAR FYRIR HELGINA... það var æðislegt að fá ykkur!! =) En jæja veit ekki hvað ég get mikið meira sagt... nema ég er búin að vera eitthvað voða slöpp i gær og í dag.. reyndar hressari í dag... En ég kenni alfarið snjónum um þetta... en já það er sko kominn vetur núna.. snjór og kuldi takk fyrir!!! =) En er að hugsa um að fara að lærulíast.. hafið það gott allir!!! Kram Kristveig
.......2007......... Jahá... það eru orðnar smá breytingar síðan ég bloggaði seinast... nú er ég bara orðin ein þannig að ég ein þarf að reyna að halda þessu bloggi við... humm.. sjáum hvernig það fer.. En fyrir þá sem ekki vita þá er Kría flutt aftur til klakans góða...
Eníveis.. ég nenni ekki að fara að segja mikið frá hvernig árið 2006 kom út á endanum nema hvað að ég er bara sátt með það ár... mjög skemmtilegt á heildina litið, þó eins og alltaf eru dagarnir misjafnir ekki allir eins og maður myndi vilja... En nú er bara að horfa fram á við... held bara að 2007 verði gott ár... Já ég sem sagt kom aftur heim til Svíþjóðar í gærkvöldi eftir að hafa verið tæpar 4 vikur á Íslandi. Þetta voru get ég sagt ykkur alveg æðislegt frí !!! Ánægð með það!!
Ég byrjaði svo í skólanum í dag... ég tek efnafræði og ..humm.. kúrs sem nefnist Nanovetenskapliga Tankeverktyg ... ég er ekki alveg viss um hvað sá kúrs snýst um ... en allavega veit ég að Fourier kemur eitthvað við sögu... kemur bara í ljós... Eitt er samt smá pirrandi, þ.e. að ég er á milli ára, annar kúrsinn 1.árs og hinn 2.árs... þannig að auðvitað lendi ég í árekstrum... sem gerir það að verkum að ég þarf að velja milli fyrirlestra og ég veit í raun ekki hvor kúrsinn er mikilvægari...
Jæja ég er nú alveg að fara að hætta... vildi bara segja frá því að næstu helgi ætla annaðhvort Þurý og Hildur að koma til mín eða Þurý og Andri... ekki alveg komið á hreint en hvort heldur sem það verður þá hlakka ég mikið til ... þannig að ég þarf að vera extra dugleg í þessari viku að læra svo ég geti eytt tíma með þeim!!!
Allavega, ég segi þetta gott í bili... hef ekki hugmynd hvort eða hvenær næsta blogg verður skrifað... en ég segi bara góða nótt!!!
Færeyska lögþingið hefur samþykkt, með 17 atkvæðum gegn 13, að samkynhneigðir skuli njóta lagaverndar gegn háði og ofsóknum. Samskonar frumvarp var fellt með yfirgnæfandi meirihluta á síðasta ári.
Mega nú, skv. frumvarpinu, „hvusskonar kynvitleysingar og bossahossarar“ framkvæma hverja þá „kynvitleysu og attaníossaníseringu“ sem þeim hugnast, hvar sem er og hvenær sem er - og er harðbannað að velta þeim upp úr tjöru og fiðri og kasta fyrir björg eins og hefur tíðkast hingað til - að viðlagri allt að 500 IKR sekt.
Langar að segja ykkur sögu, sögu um Kristveigu. Kristveig er kjánaprik fast í líkama lítils útlendings. Hún er ljóshærð, með gleraugu, nema þegar hún er með linsur, og í fyrra var hún kosin lélegasti bloggarinn á heimsmeistaramóti. Þetta var vitaskuld lélegast bloggari innanhús.....því miður átti hún ekki séns í utanhúss titilinn. Já, það er margt hægt að segja um hana kristveigu. Hérna er smá saga úr pokahorni mínu, ein af þessum snilldarhlutum, sem gerast bara þegar maður eyðir flest öllum dögum með skvísunni
Við vorum á röltinu niðrí bæ í gær, versla, apótekast, kaupa sleikjóa...sem sagt svona tippikal laugardagsferð, þegar kristveig stakk uppá að fara að fá okkur að borða á þvílíkt næs veitingastað sem heitir fellini, sem við og gerðum. Þegar þangað var komið þurfti þurftum við að bíða heillengi, aðeins til þess að ná í matseðlana sjálfar...ekki mikið um þjónustu á þeim bænum. Við pöntuðum okkur báðar lasagna og átum það með bestu lyst....alveg þangað til að kristveig tók síðasta bitann og fann hár í matnum sínum!! Um þetta leyti vorum við báðar orðnar svo saddar, svo það skipti litlu að við misstum gjörsamlega matarlystina. Svona korteri seinna, þegar við vorum að klára drykkina okkar stynur kristveig : "Úff, ég er alltof södd, eiginlega bara það södd að mér er flökurt....ég hefði átt að sleppa því að borða þetta hár" HAHAHAHAHA Ég engdist sundur og saman í stólnum mínum. Litla mjóa Kristveig sem verður svo södd af því að borða hár :D
Annars er lítið að gerast, er bara að þvo þvott
Hlakka til í næstu viku, spennandi atburðir afoot, en ekkert sem ég nenni að útskýra né ræða frekar....
Hef ákveðið að snúa mér alfarið að því að ignora karlmenn aftur....I have too many stalkers on my hands....best að skipta um númer.
Mæli með því að fólk skoði nýjustu myndirnar á síðunni minni. Við Kristveig og Vanessa fórum á smá oggu ponsu skrall, og misstum okkur í myndavélinni. Ég get með sanni sagt að myndavélin var bönnuð innan 16 ára þegar ég tæmdi hana, en ég ritskoðaði bunkann aðeins, og þær verstu voru teknar út....en ekki eyddar....svo þegar vanessa og kristveig verða frægar, þá mun ég græða fullt,fullt af peningum :D
Jæja, ég ætla að fara að þvo meira, svei mér ef ég er ekki bara farin að læra á þetta "setja í þvott" dæmi.... hefur bara tekist að eyðileggja einar nærbuxur síðan ég flutti út...held að mamma mundi kalla það afrek!
Sí jú Kristín "eineygða" Arielsdóttir
26. nóvember 2006 klukkan 16:50
Kristveig 5 athugasemdir
A is for age: KS: 21 KÞ: 22 B is for booze of choice: KS: Beeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeer KÞ: white C is for career: KS: money money money moooooneeeeeey KÞ: frumkvöðull í nanótækni á Íslandi… D is for you dad´s name: KS: Stefán KÞ: Þorbergur E is for essential items to bring to a party: KS: alcahol KÞ: góða skapið… og alchahol F is for favourite song at the moment: KS: It´s beginning to look like alot christmas KÞ: Over and over… Hot Chip G is for favourite game: KS: Hver hefur aldrei…. KÞ: Trivial Persuit… og KANI of course H is for home town: KS: Lund, Sweden KÞ: Lund, Sweden I is for instruments you play: KS: eigin rödd KÞ: altflauta og píanó J is for jam or jelly you like: KS: no thank u…! KÞ: blueberry… K is for kids: KS: gimme gimme gimme… KÞ: like L is for last movie you saw: KS: Stick it KÞ: Stick it M is for mother´s name: KS: Inga Mæja KÞ: Sigurborg N is for name of your crush: KS: Keanu Reeves KÞ: don´t tell… O is for overnight hospital stays: KS: once KÞ: once P is for phobias: KS: bananas KÞ: e-ð að stingast í augun… köngulær… geitungar…skordýr almennt bara… Q is for quotes you like: KS: geri ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn í staðinn KÞ: þetta reddast… R is for relationship that lasted the longest: KS: 3 ½ KÞ: ekki markvert… S is for sartorial style: KS: black pants, black shirt KÞ: simple T is for time you wake up: KS: never wake up KÞ: when I stop dreaming… U is for underwear: KS: sexy sexy sexy KÞ: black… V is for vegetables you love: KS: gúrka KÞ: paprika W is for weekend plans: KS: party/study girl KÞ: læra, djazzbrunch og djamm... X is for x-rays you´ve had: KS: can´t count KÞ: many… Y is for yummy food you make: KS: egg og bacon KÞ: kjúklingur í pestói… Z is for zodiac sign: KS: gemini… double personality KÞ: krabbi… varkár persónuleiki…
Allir að svara sjálfir í kommentum…..
11. nóvember 2006 klukkan 06:06
Kristveig 3 athugasemdir